Þetta er ein ástæðan fyrir því....

Að ég reyni helst að versla erlendis, ofan á það er algjör hryllingur að fara í verslanir á " útsölum ". . . Fólk er gjörsamlega froðufellandi yfir " frábæru verði " og kaupir eins og það eigi lífið að leysa....

 

Áfram Walmart - Fínt og ódýrt að versla þar - ENGINN SKATTUR á fötum og mat í USA, enda eru þetta nauðsynjar í þeirra huga.... Þeir í landi feita fólksins eru ekki alveg svo vitlaus Wink


mbl.is Hækka verð fyrir útsölur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég versla nánast allt nema mat í gegnum netviðskipti við Bandaríkin og Bretland.  Borga þá stundum VASK utan og á íslandi en spara samt 40-50%.

Jonsi (IP-tala skráð) 9.1.2012 kl. 09:33

2 identicon

Erum við ekki land feita fólksins ?

Jonsi (IP-tala skráð) 9.1.2012 kl. 09:34

3 Smámynd: Arnar Bergur Guðjónsson

Mér þætti gaman að fá að vita á hvaða síðum þið eruð að versla.
þetta er alveg ótrúlegar margar búðir sem gera þetta, að hækka verðið fyrir úrsölu og þessi Andrés hjá SV segir að það séu svo miklar sveiflur á gengi krónunar.

Það er rétt, en hins vegar eru þetta oft föt sem voru keypt inn löngu fyrir jól eða sem þeir eiga á lager af eldri fötum sem voru fyrir löngu keypt inn.
og þar af leiðandi ætti verðið ekki að hækka út af gengi krónunar þegar þetta eru ekki einu sinni NÝ föt á útsölu.

Mér finnst margar búðir hér á landi bara reyna að svíkja sem mest út úr kúnnanum. en því miður þá erum við svo viðskiptalega brengluð og heimsk mörg hver að fólk kaupir þetta samt.


Arnar Bergur Guðjónsson, 9.1.2012 kl. 11:53

4 Smámynd: Guðbrandur Ólafsson

Samkvæmt "mínum skilningi" eru vörur framleiddar úr hveiti( þ.e. brauð ) yfirleitt aldrei á útsölu nema komið sé fram yfir síðasta söludag.  Því þykir mér samanburður Andrésar Magnússonar varðandi hækkanir á vöruverði fyrir útsölur ómarktækar með öllu.

Guðbrandur Ólafsson, 9.1.2012 kl. 13:11

5 identicon

Svo Guðbrandur viti:

Það er bannað að selja útrunnar matvörur !

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 9.1.2012 kl. 13:43

6 identicon

Það er rangt að enginn skattur sé af fötum og mat í USA. Þetta er nánast eins misjafnt og ríkin eru mörg. Td. er skattur um 9% í New York (Manhattan nánar tiltekið, en skattprósentan er misjöfn innan New York ríkis). Þar er skattur ekki innheimtur af fötum nema upphæð fari yfir $100.

Tek undir margt annað, kaupmönnum er ekki treystandi hérlendis, enda samkeppnin lítil og ef til vill eru þeir allir í sama saumaklúbbi.

Þór Ingvason (IP-tala skráð) 9.1.2012 kl. 13:45

7 identicon

Smá villa hér að ofan. Skattur er innheimtur á Manhattan EF upphæð fer yfir $100.

Þór Ingvason (IP-tala skráð) 9.1.2012 kl. 13:47

8 identicon

Humm. Villa að ofan var ekki villa og því ekki leiðrétt...

Jamm þannig er nú það.

Þór Ingvason (IP-tala skráð) 9.1.2012 kl. 13:49

9 Smámynd: Jónatan Gíslason

ég er roalega hræddur um að ef að það yrði afnumið skatta á föt og mat þá mundu kaumenn nýta sér það til að hækka alagninu hérna á klakanum þeir virðast allir vera það siðlausir, sjáum til dæmis hvernig allt hækkaði þegar gengi kronunar lækkaði í kring um 2001 og svo þegar gengið styrktist þá lækkaði EKKERT

Jónatan Gíslason, 13.1.2012 kl. 04:11

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og sextán?
Nota HTML-ham

Höfundur

Gísli Birgir Ómarsson
Gísli Birgir Ómarsson

Góðhjartaður 30 ára faðir á uppleið. Menntaður EMT-I ( Sjúkraflutningamaður með Neyðarflutningsréttindi ) Stefni að námi í Lögregluskóla Ríkisins. Fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum 1980 - 2000. Síðan þá búið í Kópavogi. Er mikill áhugamaður um flug ( www.airliners.net ) og er kominn með 12 tíma í loggbók. Ætla að klára einkaflugið síðar, þegar ég er orðinn nógu fjáður til þess. Áhugamál eru margvísleg t.d. ferðalög hér heima og erlendis, matseld og tónlist.....

“ You have enemies ? Good. That means you've stood up for something, sometime in your life. ”
Winston Churchill

BLAÐAMENN FJÖLMIÐLA !!!!! Sýnið mér þá virðingu að biðja um leyfi, áður en þið ákveðið að nota efni frá mér í greinar hjá ykkur... Sendið á: gebbo@visir.is

 

ÞETTA ERU EINGÖNGU MÍNAR SKOÐANIR - EN EKKI ÁLIT, SKOÐANIR EÐA STEFNUR EINSTAKLINGA, FYRIRTÆKJA OG EÐA STOFNANA.

Nýjustu myndir

  • Gjörgæsla
  • Bjsv. Hérað
  • Bjsv Hérað.
  • ...img
  • Ég sjálfur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 51438

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband